Tómas A. Tómasson, veitingamaður sem oft er kenndur við Búlluna, skartar nú nýju og glæsilegu húðflúri á vinstri handleggnum.
Eins og Tómas, eða Tommi eins og hann er jafnan kallaður, greindi frá í september síðastliðnum er hann á leið í framboð fyrir Flokk fólksins. Nýja húðflúrið hans er til marks um hollustu hans við flokkinn, en um er að ræða splunkunýtt merki Flokks fólksins sem frumsýnt var í desember.
„Hann er svo sannarlega grjótharður og mjög sáttur með nýja merkið okkar,“ segir Inga Sæland í stuttu spjalli við Hringbraut. Mynd af handleggnum á Tomma birtist á Facebook-síðu Flokks fólksins í gærkvöldi.
Tommi stefnir á að komast á þing en eins og kunnugt er fara kosningar fram í september næstkomandi. Tommi hefur látið sig málefni öryrkja, eldri borgara og einstæðra foreldra varða og lýsti hann því í pistli á vef Eiríks Jónssonar í fyrrahaust að eitt af stefnumálum hans væri að útrýma fátækt.
Nýja logoið okkar er glæsilegt á Tomma. Hann er örugglega einn af okkur. Áfram Flokkur fólksins!
Posted by Flokkur fólksins on Miðvikudagur, 20. janúar 2021