Mynd dagsins birti Sólveig Gylfadóttir hjúkrunarfræðingur á smitsjúkdómadeild Landspítalans en hún er ein af þeim sem stendur í fremstu víglínu í baráttunni við kórónaveiruna eða COVID-19. Frásögn Sólveigar fyrr í vikunni vakti mikla athygli en þar kvaðst hún vera stolt að vinna á deildinni á þessum erfiðu tímum. Sólveig sagði þá:
„Ég elska vinnuna mína ólýsanlega mikið, hún er gefandi, krefjandi, erfið á tímum og viðurkenni að ég hef stundum grátið, við megum ekki gleyma að við erum mennsk.“
Í dag birtir hún mynd af sér í gallanum og hvernig hún svo lítur út eftir langar og strangar vaktir. Sólveig segir:
„Ekki þægilegasti galli í heimi, en er þó örugg. Væri samt alveg til í laun í samræmi við þetta álag sem er bæði andlegt og líkamlegt.“
Hér má skrifa undir og skora á að laun hjúkrunarfræðinga verði hækkuð.