Mynd dagsins: Sólrún Diego í framboð fyrir Framsóknarflokkinn?

Sólrún Diego hefur haft í mörg horn að líta undanfarin misseri og prýðir hún til dæmis auglýsingu frá Heimkaup þessa dagana. Sólrún þykir hafa gott auga fyrir góðu skipulagi og hefur hún til dæmis skrifað heila bók um það.

Á Twitter birtist auglýsing Heimkaups þar sem sjá má Sólrúnu Diego og virðast einhverjir hafa haldið að hún væri á leið í framboð. Twitter-notandinn Starkaður Pétursson hélt það að minnsta kosti og ljái honum hver sem vill:

„Í fljótu bragði hélt ég raunverulega að Sólrún Diego væri að sækjast eftir 2. sæti á lista Framsóknarflokksins,“ segir hann en auglýsingin er vissulega keimlík þeim fjölmörgu framboðsauglýsingum sem hafa birst að undanförnu, enda aðeins örfáir mánuðir til kosninga.

Þó að Sólrún sé með marga fylgjendur á samfélagsmiðlum – sem ef til vill gætu hjálpað henni í prófkjörsbaráttu – er hún ekki á leið í framboð fyrir Framsóknarflokkinn eða einhvern annan flokk. Hver veit þó hvað gerist þegar fram líða stundir?