Mynd dagsins: Skylda að nota hanska á bensínstöð

Svo virðist sem bensínstöð Olís úti á Granda hafi brugðið til þess ráðs að gera öllum viðskiptavinum skylt að nota hanska í versluninni.

Við inngang stöðvarinnar má sjá blað þar sem á stendur „Vinsamlegast notið hanska“ og fyrir neðan blaðið var búið að koma fyrir einnota gúmmíhönskum af ýmsum stærðum og gerðum.

Ekki er ljóst hvort reglur um hanskanotkun séu í gildi á öllum stöðvum Olís eða einungis stöðinni úti á Granda