Mynd dagsins að þessu sinni sýnir lítið baðherbergi í fallegu húsi í Fossvoginum sem nú er til sölu hjá fasteignasölunni Eignamiðlun. Baðherbergið hefur meðal annars vakið athygli á samfélagsmiðlinum Twitter. Myndina má sjá hér neðst.
Um er að ræða endaraðhús við Giljaland en á einni myndinni má sjá að búið er að koma fyrir stöðumæli við klósettskálina á gestabaðherbergi hússins. Sannarlega athyglisverð – en kannski dálítið skemmtileg – staðsetning fyrir stöðumæli.
Ekki fylgir sögunni hvort gestkomandi þurfi að borga í stöðumælinn áður en þeir setjast á klósettið.
Ásett verð á húsinu er 109,9 milljónir króna enda á eftirsóttum stað og auk þess 236 fermetrar. „Húsið er vel staðsett í hverfinu, stutt í skóla, leikskóla og Víkina,“ segir í sölulýsingu.