Mynd dagsins: „Mitt framlag í dálkinn „Vikan á Instagram“

Eiríkur Rögnvaldsson, prófessor emeritus í íslensku, vill fá að vera með í dálknum vinsæla „Vikan á Instagram“ á vef DV. Dálkurinn, sem birtist alltaf á mánudögum, hefur notið mikilla vinsælda frá því hann fór af stað fyrir nokkru síðan. Þar má sjá helstu myndir sem íslenskar samfélagsmiðlastjörnur hafa birt af sér vikuna á undan á Instagram.

Myndirnar eru margskonar en oftar en ekki eru þær af léttklæddum stjörnum í þartilgerðri stellingu með símann á lofti. Eiríkur veit alveg um hvað þetta snýst og birtir þessa mynd af sér á Facebook. „Mitt framlag í dálkinn „Vikan á Instagram,“ segir hann.

Mitt framlag í dálkinn "Vikan á Instagram".

Posted by Eiríkur Rögnvaldsson on Tuesday, January 26, 2021