Mynd dagsins: „Hvernig á fólk að komast um þessa borg öðruvísi en á bíl?“

Mynd dagsins að þessu sinni birti Þórdís Gísladóttir rithöfundur á Twitter-síðu sinni. Umrædd mynd er tekin við framkvæmdasvæði við Njálsgötu í miðborg Reykjavíkur og sýnir hvernig steypuklumpur lokar gangstétt.

„Hvernig á fólk að komast um þessa borg öðruvísi en á bíl? Er ekki bara hægt að hætta að loka gangstéttum? Ef þetta þarf að vera svona þá er lágmark að loka Njálsgötunni fyrir bílum á meðan gangstéttar eru tálmaðar,“ segir Þórdís.