Augljóst er að Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, nýtur sín vel í fríi frá þingstörfum þessa daganna.
Hvort sem hann er að skrifa heilsíðugreinar í Morgunblaðið eða þakka fyrir viðbrögðin við henni með annarri grein hefur hann látið það vera að flatmaga og taka sér alfarið frí frá pólitíkinni.
Sjá einnig: Sigmundur Davíð veldur usla: „Látum hann ekki ná árangri í þessari lágkúru sinni“
Í mynd sem hann birtir á Facebook-síðu sinni í dag sést formaðurinn sveifla sleggju af miklu heljarafli hjá regnboga sem myndi sæma sér vel með Miðflokkshrossinu fræga.
„Það virðist vera að ef maður sveiflar sleggju nógu hratt myndist regnbogi,“ skrifar hann undrandi.
Ekki fylgir sögunni hvort Sigmundur hafi þarna verið að fá útrás fyrir gremju í garð netverja sem ruku til handa og fóta í kjölfar skrifa hans eða reyna að komast að gulli við enda regnbogans.