„Þetta er hann Grettir Adolf, sem er mikill músaveiðari. Hann hefur líka gaman að því að skemmta mannfólkinu sínu með athyglisverðum leiðum um hverfið,“ segir í býsna skemmtilegri færslu sem birtist í hópnum Kettir á Facebook í gær.
Það er í raun óþarfi að hafa mörg orð um mynd dagsins enda oft sagt að myndir segi meira en þúsund orð. Það á svo sannarlega við í þessu tilviki.