Mynd dagsins að þessu sinni birtist í íbúahópi Vesturbæinga á Facebook og sýnir trampólín sem börn í ákveðnum húsum mega ein nota. Það sem flækir málið er að trampólínið er staðsett á borgarlandi en ekki á einkalóð.
„Ég var á röltinu í Granaskjóli með vinkonu minni og börnunum hennar sem býr í hverfinu og hún benti mér á þetta rugl! Nú eru foreldrar nokkurra íbúða búin að planta trampólíni á rólóvöll sem er á borgarlandi og þar af leiðandi í eigu okkar allra og setja reglur um að einungis börnin þeirra megi nota það,“ segir í færslunni sem kona ein setti í grúppuna.
Tekið er fram að trampólínið sé eingöngu fyrir börn í Granaskjóli 29 og Granaskjóli 66-90.
Konan sem setti færsluna inn gagnrýnir þetta harðlega og spyr hversu „privilege“ viðkomandi þurfi að vera til að halda að hægt sé að taka land af rólólvelli og búa til reglur um að einungis ákveðin börn megi leika á því.
„Hvaða rugl/tíska er það að efnað fólk í Vesturbænum sé að taka land í “fóstur” aka stela landi hægri vinstri? Ég ætla að biðja þessa foreldra að taka niður trampólínið af landinu mínu og þínu! Eða að taka niður skiltið og eyða út þessari ljótu reglu.“