Hraundrangi er 1075 metra hár fjallstindur á Drangafjalli í Öxnadal. Hann var lengi talinn ókleifur, en 5. ágúst 1956 var hann klifinn af tveimur Íslendingum og einum Bandaríkjamanni, sem voru Sigurður Waage, Finnur Eyjólfsson og Nicholas Clinch.
Sagnir höfðu verið um að kista full af gulli væri geymdu upp á tindinum, en sú saga reyndist ekki á rökum reist að sögn klifurmannanna.
Hraundrangi er ekki síst þekktur vegna ljóðs Jónasar Hallgrímssonar, Ferðalok, sem hefst á línunum „Ástarstjörnu / yfir Hraundranga / skýla næturský.“
Gunnar nokkur kleif nú nýverið tindinn nýverið og tók þar mynd af sér og félögum sínum á toppi Hraundranga. Það er ljóst að þar er svo sannarlega ekki mikið pláss eins og sjá má.
Ef þú hefur einhvern tímann velt fyrir þér hversu mikið pláss er á toppi Hraundranga þá er hér komið svar pic.twitter.com/GvM2UZHedH
— gunnare (@gunnare) August 15, 2022