Minnast Finns og Jóhönnu: Opna styrktar­reikning fyrir börn þeirra

Parið sem lést í um­ferðar­slysi á Vestur­lands­vegi á sunnu­dag hét Finnur Einars­son og Jóhanna S. Sigurðar­dóttir. Finnur og Jóhanna voru með­limir í HOG Chapter Iceland, fé­lagi Harl­ey David­son-eig­enda á Ís­landi, og minnist fé­lagið þeirra á Face­book-síðu sinni.

Í færslu sem birt var á gær­kvöldi kom fram að annar með­limur í fé­laginu, Pétur Hall­dór Ágústs­son, hefði einnig slasast í slysinu og er hann á bata­vegi.

„Kæru fé­lagar, það er með mikilli sorg í hjarta að ég flyt ykkur þær fréttir að fé­lagar okkar í HOG Chapter Iceland, Finnur Einars­son og Jóhanna S. Sigurðar­dóttir, létust í bif­hjóla­slysinu á Kjalar­nesi síðast liðinn sunnu­dag. Börnum þeirra og að­stand­endum öllum, sem og vinum, vottum við okkar dýpstu sam­úð.“

Í frétt Frétta­blaðsins er haft eftir Bjarna Vest­mann, for­manni fé­lagsins, að Finnur og Jóhanna hafi verið virk í fé­laginu og lagt mikið af mörkum í starf fé­lagsins. Finnur tók til að mynda við vara­for­mennsku í fé­laginu um ára­mótin 2018/2019.

Finnur var 54 ára en Jóhanna 53 ára. Þau voru sam­býlis­fólk og bú­sett í Garða­bæ. Þau láta eftir sig fjögur upp­komin börn. HOG Chapter Iceland vakti einnig at­hygli á styrktar­reikningi fyrir börn þeirra sem munu ó­hjá­kvæmi­lega bera nokkurn kostnað vegna frá­falls þeirra. Þeim sem vilja styrkja þau er bent á eftir­farandi styrktar­reikning: 0114-15-382407. Kt:020168-4209.

English will follow. Kæru félagar, það er með mikilli sorg í hjarta að ég flyt ykkur þær fréttir að félagar okkar í HOG...

Posted by HOG Chapter Iceland on Miðvikudagur, 1. júlí 2020

Sæl öll, börn Finns og Jóhönnu munu óhjákvæmilega bera nokkurn kostnað vegna fráfalls Finns og Jóhönnu og jarðarfarar...

Posted by HOG Chapter Iceland on Miðvikudagur, 1. júlí 2020

Fleiri fréttir