„Bíddu, en afhverju megum við þá ekki loka á nauðsynjalaus ferðalög hingað til lands, láta þetta gilda í báðar áttir? Væri það ekki skynsamlegt eins og staðan er núna í heiminum?“
Þessari spurningu varpar Marta Eiríksdóttir, sem er með diplómagráðu í ferðamálafræðum, í aðsendri grein á vef Vísis í dag.
Um fátt hefur verið meira rætt undanfarna daga en aðgerðir íslenskra yfirvalda á landamærunum og óhætt að segja að skoðanir séu skiptar. Marta er þeirrar skoðunar að Ísland ætti í raun að skella í lás og vísar hún til að mynda í viðtal Bylgjunnar við leikarann Ólaf Darra Ólafsson sem er staddur í Ástralíu. Við komuna til landsins þurfti hann að vera í tveggja vikna sóttkví inni á lokuðu hótelherbergi.
„Hann hafði að vísu svalir og sagði auðvitað þetta hafa verið skrítið en svona voru lög og reglur þar í landi sem hann að sjálfsögðu virti og sagðist bara hafa haft það ágætt og notið einverunnar. Svo losnaði hann út og fór grímulaus út í samfélagið en það er vel hægt því Ástralir leyfa engar óþarfa ferðir útlendinga inn í landið og kvóti er á fjölda fólks á dag inn í landið. Túristaheimsóknir verða að bíða betri tíma segja þeir, því verið er að vernda líf almennings og leyfa þeim að njóta þess að vera frjáls og grímulaus í landi sem hefur lokuð landamæri.“
Marta segist einnig hafa heyrt af íslenskri fjögurra manna fjölskyldu sem fór í tveggja vikna sóttkví á hóteli í Perth í Ástralíu. Var fjölskyldunni fylgt af lögreglu á hótelið frá flugvellinum.
„Á hótelinu voru engir opnanlegir gluggar né svalir, enginn útivistartími, þrjár máltíðir á dag og öryggisverðir á hverri hæð. Það var hringt í þau á tveggja daga fresti til að athuga hvernig þau höfðu það. Þau þurftu öll fjögur að fara í tvær covid skimanir. Konan sagði þetta hafa verið krefjandi verkefni en vel þess virði til að lifa í samfélagi með engu covid.“
Marta heldur áfram og bendir á að maður sem var á ferðalagi í Mongólíu hafi verið í sóttkví á hótelherbergi í þrjár vikur og þá skikki Norðmenn fólk sem kemur til Noregs í tíu daga sóttkví. Þeir leyfi engar óþarfa túristaferðir inn í landið og því megi segja að landið sé að vissu leyti lokað.
„Gylfi Zoega hagfræðingur segir um okkur Íslendinga að við séum 90% hagkerfi Íslands þessa dagana vegna þess að við erum ekki að ferðast til útlanda og eyðum því meira af peningum innanlands í allskonar upplifanir og verslun. Við þurfum sem sagt ekki erlenda túrista vegna hagkerfisins eins og staðan er, segir hann.“
Þá bendir Marta á að Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir hafi beðið landsmenn að fara ekki í nauðsynjalaus ferðalög til útlanda vegna aðstæðna í heiminum. Spyr hún hvers vegna við megum þá ekki loka á nauðsynjalaus ferðalög hingað til lands.
„Maður spyr sig. Getum við gert þetta? Hugsað meira um heildina; Um okkur sjálf? Verndað í leiðinni heilsu almennings, þeirra sem búsettir eru á Íslandi? Eygja þannig von um gott sumar. Geta gert allt sem við viljum innanlands í vor og sumar, með strangara hliði að landamærum okkar? Njóta þess miklu betur að vera eyland. Grímulaus og frjáls í eigin landi. Lifa þokkalega eðlilegu lífi á eyjunni okkar, á meðan veirufaraldurinn gengur yfir í umheiminum.“