Marta María Jónasdóttir, umsjónarkona Smartlandsins á mbl.is, hefur sett eign sína við Lautarveg í Fossvogi á sölu. Um er að ræða býsna glæsilega jarðhæð með sérinngangi og bílskúr, ásamt aukaíbúð, í þríbýli. Eignin er 230 fermetrar og er ásett verð 119,8 milljónir króna.
Aukaíbúðin í húsinu er 64 fermetrar og er hægt að opna á milli ef kaupendur vilja stækka eigin íbúð. Sérsmíðaðar innréttingar frá Brúnás eru á hæðinni, kvartsteinn á öllum borðplötum og speglaklæddir skápar í forstofu og í hjónasvítu.
Hæðin sjálf er 165,7 fermetrar, með 30 fermetra bílskúr, en á hæðinni eru tvö baðherbergi, annað inn af hjónaherbergi og hitt á gangi. Tekið er fram í sölulýsingu að eignin verði ekki sýnd fyrr en í opnu húsi.
Marta María er augljóslega mikil smekkmanneskja eins og meðfylgjandi myndir bera með sér. Líklega hefur hún komið eitthvað við í Epal á undanförnum árum en í stofunni má meðal annars sjá Eggið, tímalausa hönnun Arne Jacobsen, og Svaninn eftir sama hönnuð. Við eldhúsborðið eru svo Sjöurnar svokölluðu sem einnig eru eftir Arne Jacobsen.
Myndirnar má sjá hér að neðan og hér má nálgast sölulýsingu eignarinnar.