Í því ástandi sem ríkir á Íslandi – og í heiminum öllum – er alltaf þörf á góðum og jákvæðum fréttum. Góðhjörtuð kona í Breiðholti fær hrós dagsins fyrir góðverk í verslun Bónuss í Hólagarði í Breiðholti í dag.
Kasia Szafraniec, móðir sjö ára pilts, lýsti eftir konunni í Facebook-hópi íbúa í Breiðholtinu. Þannig er mál með vexti að pilturinn ungi hafði farið út í búð fyrir mömmu sína þar sem hún þurfti að vera heima með öðru barni sínu. Keypti hann einn lítra af mjólk og grjónagraut en þegar kom að því að borga vandaðist málið.
Einhverra hluta vegna gat hann ekki borgað með kortinu sem Kasia hafði látið hann fá og þá hafði hann gleymt PIN-númerinu. Þá voru góð ráð dýr en í röðinni fyrir aftan strákinn var kona í rauðum jakka eða úlpu sem borgaði fyrir hann.
„Ef þú ert að lesa þetta elsku þú, getur þú plís sent mér skilaboð svo ég geti borgað þér til baka,“ sagði Kasia í færslunni.
Í samtali við Hringbraut nú um klukkan 16 sagði Kasia að konan væri búin að hafa samband. Sagði hún Kasiu að hún vildi ekki fá greitt til baka, þess í stað mætti hún láta son sinn hafa peninginn.
„Ég er í sjokki,“ segir Kasia sem er augljóslega þakklát þessari góðu konu sem kom syni henni til hjálpar. Segir Kasia að það sé gott að vita til þess að úti í samfélaginu séu góðhjartaðir einstaklingar sem eru tilbúnir að hjálpa. „Þetta gerir daginn betri,“ segir hún.