Magnús Guðmundsson, eða Maggi Peran, sem mörgum ætti að vera kunnugur af sjónvarpsskjánum í kringum Amerískan fótbolta birti í dag myndir af afborgununum af húsláninu sínu.
Greint var frá því í morgun að peningastefnunefnd bankans hefði hækkað vextina um eitt prósent og eru stýrivextir því komnir í 7,5 prósent.
„Efnahagslífið er sjóðandi heitt. Seðlabankanum ber að bregðast við og mun gera það,“ sagði Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri meðal annars þegar hann kynnti ákvörðun peningastefnunefndar um tólftu stýrivaxtahækkunina
„Fyrir hönd viðskiptavina með breytilega vexti á óverðtryggðu láni vil ég þakka þér Herra Ásgeir Jónsson. Kjarasamningslotan í haust mun verða þung. Allt undir 25% launahækkun er ekki í boði,“ skrifar Maggi.
Greiðslurnar má sjá hér að neðan.
Fyrir hönd viðskiptavina með breytilega vexti á óverðtryggðu láni vil ég þakka þér Herra Ásgeir Jónsson. Kjarasamningslotan í haust mun verða þung. Allt undir 25% launahækkun er ekki í boði 🧠 pic.twitter.com/JcOmzaVuL4
— Maggi Peran (@maggiperan) March 22, 2023