Maður sem leitað var að við Langasand á Akranesi í gærkvöldi fannst látinn. Þyrla Landhelgisgæslunnar var meðal annars kölluð út til leitar en maðurinn hafði farið í sjósund fyrr um kvöldið.
Landhelgisgæslan staðfestir í samtali við mbl.is að maðurinn hafi fundist látinn, að því er segir í frétt miðilsins. Haft er eftir Ásmundi K.R. Ásmundssyni, yfirlögregluþjóni hjá lögreglunni á Vesturlandi, að málið sé til rannsóknar.
Fréttablaðið greinir frá því að maðurinn hafi verið Íslendingur.