Maður lést í skelfilegu slysi á sveitabýli í Ásahreppi

Á föstudag lét maður lífið í vinnuslysi á sveitabýli í Ásahreppi.

„Verið var að vinna við dráttarvél og klemmdist þar maður sem lést af sárum sínum. Ekki er unnt að greina frekar frá tildrögum slyssins að svo stöddu,“ segir í tilkynningu lögreglunnar.

Rannsóknardeild lögreglunnar á Suðurlandi fer með rannsókn málsins.