Líkt og flestum ætti nú að vera kunnugt eru hertar samkomutakmarkanir í gildi hér á landi vegna kórónaveirufaraldursins og tveggja metra reglan er skylda á ný eftir að fjöldi nýrra smita komu upp í júlí. Til að mynda hafa verslanir þurft að grípa til ráðstafana til að tryggja að fólk fari eftir settum reglum.
Þrátt fyrir að flestir fari eftir reglunum virðast sumir halda að þær reglur ná ekki til þeirra. Greint er frá einu slíku atviki í Facebook hópnum Sögur af dónalegum viðskiptavinum en þar segir afgreiðslumaður hjá ónefndu apóteki að eldri kona hafi troðið sér fram hjá borða og fjölda skilta sem á stóð að ekki mætti fara þar í gegn.
„Þessi skilti eru sett til að koma í veg fyrir umferð úr gagnstæðri átt sem myndi brjóta í bága við 2 metra regluna,“ segir afgreiðslumaðurinn í færslunni en þar sem hann hafði verið að afgreiða aðra hafi hann ekki náð að kalla til konunnar að þetta væri ekki inngangur að afgreiðslukössunum.
„Ég klára að afgreiða parið sem var á kassa hjá mér og kalla til næsta kúnna sem er þessi eldri kona. Í miðri afgreiðslu bendi ég henni vinsamlega á, eins og öllum þeim sem hundsa eða einhvern veginn taka ekki eftir skiltunum sex og borðanum, að næst skuli hún fara réttum megin í gegn þar sem þetta væri ekki inngangur að kössunum,“ segir afgreiðslumaðurinn enn fremur.
Konan hafi þá svarað að hún vissi það og ítrekaði afgreiðslumaðurinn að það hafi verið sett upp til að viðhalda tveggja metra reglunni. Þegar konan hélt því fram að hún hafi farið þá leið þar sem það var enginn í röðinni svaraði afgreiðslumaðurinn að það væri ekki rétt því hann var að afgreiða aðra.
„Það skiptir engu máli. „ÞAÐ ER EKKERT COVID“,“ sagði konan þá við afgreiðslumanninn sem stóð eftir orðlaus. „Lestu ekki rannsóknir? Þúsund Bandarískir læknar hafa staðið upp á móti þessu!“
„Í mínu sjokki yfir þessum fáránlegu fullyrðingum, og venju minni að gera kúnnann ekki meðvitaðann um sína eigin vitleysu í kurteisisskyni, þá tune-aði ég restina út og kláraði að afgreiða hana til að vera bara búinn með hana,“ lýsir afgreiðslumaðurinn og bætir við að hann hafi heyrt konuna tuða undan honum við maninn sinn.
Hann segir að eftir á að hyggja hefði hann mögulega átt að reyna að leiðrétta konuna en hann hafi verið einn á kassa og einfaldlega séð fyrir sér að það myndi tefja afgreiðslu á kassa.
„Á þessum tíma eru þrír Íslendingar á spítala vegna Covid. Einn á níræðisaldri, annar aðeins um tvítugt, og svo einn aðeins 31 árs á gjörgæslu í öndunarvél!!“