Tónlistarmaðurinn Logi Pedro segir nytjavöruverslunina Góði hirðirinn þurfa að fara í naflaskoðun vegna stóls sem fékk hálfra milljón króna verðmiða. Stóllinn er dönsk hönnunarvara og talsvert dýrari en það sem venjulega er selt í versluninni.
„Ég held að Góði þurfi að fara í smá naflaskoðun og setja sér aðeins skýrari stefnu með verðlagningu, og hver markhópurinn er,“ segir Logi í færslu á Twitter.
Logi segir hluti kosta jafn mikið og fólk er tilbúið að borga fyrir þá en honum finnst þessi verðmiði þó vera skrítinn.
Hlutir kosta einfaldlega jafn mikið og fólk er tilbúið til að borga. En á sama tíma þá er þetta bara frekar sérkennilegt.
— Logi Pedro (@logipedro101) December 8, 2021
Ég held að Góði þurfi að fara í smá naflaskoðun og setja sér aðeins skýrari stefnu með verðlagningu, og hver markhópurinn er.https://t.co/npaNrn54t4