Ljúffengt nauta-carpaccio með ferskum rifnum parmesan í forrétt

Hér er ómótstæðilega ljúffengt nauta-carpaccio með ferskum rifnum parmesanosti sem hentar ótrúlega vel sem forréttur á fallegum sumardögum. Það er svo gaman að bera fram þennan forrétt því hann gleður bæði auga og munn. Þessi uppskrift kemur úr smiðju Sjafnar Þórðar, matgæðings og fjölmiðlakonu. „Það tekur örskamma stund að útbúa réttinn og framreiða sem er mikill kostur því við viljum eyða sem minnstu tíma inni í eldhúsinu á fallegum sumardögum. Þá er einfaldleikinn kærkominn. Uppskriftin er sáraeinföld og hráefnislistinn er stuttur og laggóður,“ segir Sjöfn sem nýtur þess í botn að framreiða ljúffenga og létta rétti fyrir matargesti sína á sumrin.

M&H Nauta carpaccio 2.jpg

Sumarlegt nauta-carpaccio

Fyrir 4

- 340 g nauta-carpaccio í sneiðum

- 1 poki/75 g klettasalat

- jómfrúarolía eftir smekk

- ferskur parmesanostur, rifinn, eftir smekk

- gróft salt eftir smekk

- fersku nýmalaður svartur pipar eftir smekk

- 1 stk sítróna, kreistur safi

Takið til fjóra meðalstóra diska og raðið sneiðunum fallega í hring, um það bil 80 grömmum á hvern disk, dreifið smá jómfrúarolíu yfir hvern skammt. Síðan er sett hálf lúka af klettasalati sáldruð yfir hvern skammt eða eftir smekk hvers og eins. Muna að skola klettasalatið fyrir notkun og þerra með eldhúspappír. Það er líka hægt að blanda saman klettasalatinu og jómfrúarolíu og sáldra svo yfir. Síðan er parmesanostur rifinn yfir eftir smekk hvers, gott að hafa mikinn ost og kryddið til með grófum saltflögum og svörtum pipar. Gott getur verið að kreista smá sítrónusafa úr ferskri sítrónu yfir í lokin eftir smekk og hvers og eins. Berið fram á fallegan hátt og njótið.

„Ég fékk tilbúið frosið nauta-carpaccio í sneiðum í Bónus sem er hrein snilld að nýta í þennan forrétt. Þessu er pakkað þannig að það eru 80 grömm í hverju lagi raðað á smjörpappír og 10 lög í hverjum kassa, þetta eru 800 grömm og kassinn er á sannkölluð Bónusverði. Þetta er snilldarvara og svo hentugt að geta bara tekið úr eitt og eitt lag í einu og látið þiðna þegar hentar. Hér notaði ég til dæmis fjögur lög úr kassanum, sem er fullkominn skammtur fyrir fjóra forrétti og á síðan til fyrir næstu forréttargleði í frystinum. Það er passlegt að nota eitt lag sem einn skammt á mann í forrétt. Allt hráefnið fæst í Bónus fyrir þetta ómótstæðilega ljúffenga forrétt.“

M&H Nautacarpaccio.jpg

Að töfra fram ljúffengan forrétt þarf ekki að vera flókið. Þessi er ómótstæðilega góður og hráefnislistinn er stuttur og laggóður.