Ljúffengar þjóðlegar pönnukökur á sunnudegi gleðja

Sjöfn Þórðar matgæðingur býður í sunnudagskaffi á þjóðlega vísu með frönskum blæ. „Sunnudagar eru tilvaldir dagar til að bjóða fjölskyldunni uppá ljúffengar pönnukökur með ómótstæðilegu meðlæti sem kitlar bragðlaukana og gleðja. Þegar veturkonungur lætur í sér heyra er ekkert notalegra enn að eiga huggulega stund með fjölskyldunni og töfra fram ljúffengar sælkera veitingar. Á okkar heimili reynum við að nýta sunnudagana til samverustunda í stofunni þar sem við snæðum saman sælkeraveitingar, frá morgni til kvölds. Meðfylgjandi er klassísk uppskrift af pönnukökum sem hefur fylgt fjölskyldunni í áranna rás, frá ömmum mínum báðum, og hittir ávallt í mark. Meðlætið setur punktinn yfir i-ið,“ segir Sjöfn.

„Pönnukökur eru ávallt góðar upprúllaðar með sykri, með rjóma eða ís. Hins vegar er hægt að gera þær enn í ómótstæðlegri með frönskum hætti, með því bjóða upp á brætt 100% súkkulaði eða nutella fyrir þá sem vilja og ferska ávexti ofan á. Einnig er til rosalega góð frönsk súkkulaðismyrja sem er vegan sem bráðnar í munni, frá Saveurs & Nature og fæst í m.a. Matarbúri Kaju. Stundum baka ég líka vegan pönnukökur sem falla ávallt í kramið. Fersk jarðaber, bláber og bananar passa vel með pönnukökum eða hvaðeina sem er í uppáhaldi hjá hverjum og einum. Einnig eiga margir sælkera sultur úr íslenskum berjum síðan í sumar sem njóta sín vel á nýbökuðum pönnukökum. Enginn verður svikinn af nýbökuðum pönnukökum með sínu uppáhalds og það er ávallt skemmtilegast að leyfa hverjum og einum að velja það sem honum þykir best.“

M&H Pönnukökur Sjafnar.JPG

Hægt er að leika sér með meðlætið og hver og einn getur valið það sem honum þykir best. Ljósmynd/Sjöfn Þórðardóttir.

Íslenskar pönnukökur

300 g hveiti

2 stk. egg

5-6 dl mjólk (má nota laktósafría mjólk eða kókosmjólk)

1 ½ msk. íslenskt smjör (um það bil)

1 tsk. lyftiduft

1 msk. sykur (má sleppa og líka setja stevíu í staðinn)

1 tsk. vanilludropar

Byrjaði á því bræða smjörið á pönnukökupönnunni við vægan hita. Setjið hveitið í skál og setjið eggin og lyftiduftið saman við. Hellið helming af mjólkinni saman við og hrærið þar til að blandan verður kekkjalaus. Ef of miklu af mjólkinni er hellt út í einu getur deigið farið í kekkið. Blandið síðan afganginum af mjólkinni rólega saman við deigið og hrærið rólega. Að lokum er bræddu smjörinu bætt saman við. Hitið pönnuna vel og passið að hafa smá fitu á henni áður enn pönnukökur eru bakaðar. Þegar pannan er orðin vel heit byrjið þá baksturinn. Betra er að deigið sé fljót að bakast því ef það er lengi að bakast verða pönnukökurnar seigar.

Veljið síðan meðlæti að eigin vali til að setja á pönnukökurnar og borðið með hjartans lyst.

M&H Vegan súkkulaðismyrja - Saveurs&Nature.jpg

Ómótstæðilega ljúffeng vegan súkkulaðismyrja frá Frakklandi. Ljósmynd/Sjöfn Þórðardóttir.