Lilja komin í veikindaleyfi að læknisráði

Lilja Dögg Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, mun að læknisráði fara í tímabundið veikindaleyfi. Þetta kemur fram í tilkynningu sem forsætisráðuneytið sendi fjölmiðlum núna á tólfta tímanum.

Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins og samgöngu- og sveitastjórnarráðherra, mun gegna störfum mennta- og menningarmálaráðherra til og með 28. júní næstkomandi. Ekki koma frekari upplýsingar fram í tilkynningunni.