Seint í gærkveldi lést kona, sem var í bílnum sem hafnaði í sjónum í Skötufirði í gær, á gjörgæsludeild Landspítalans. Nafn hennar er Kamila Majewska og var hún á þrítugsaldri. Eiginmaður hennar og ungt barn, sem einnig lentu í slysinsu, njóta læknisaðstoðar í Reykjavík og ekki tímabært að veita frekari upplýsingar um líðan þeirra.
Kamila og fjölskylda voru búsett á Flateyri og voru að koma frá Póllandi skömmu áður en slysið varð.
Lögreglan og aðrir viðbragðsaðilar votta fjölskyldu og vinum Kamilu sína dýpstu samúð, að því er segir í tilkynningu lögreglunnar á Vestfjörðum.
Umferðarslys í Skötufirði, framhaldstilkynning. Áður hefur verið upplýst um alvarlegt umferðarslys sem varð í gærmorgun...
Posted by Lögreglan á Vestfjörðum on Sunday, 17 January 2021