Leitar að konu í Bænda­blaðinu – „Ein­göngu fal­legar konur hafi sam­band“

„Mér finnst ég hálf skrítinn að vera að leita í Bænda­blaðinu, en ef þú lest Bænda­blaðið þá ertu lík­lega skrítin eins og ég,“ segir í aug­lýsingu 32 ára Norð­lendings í Bænda­blaðinu.

Smá­aug­lýsingarnar í Bænda­blaðinu vekja jafnan mikla at­hygli. Í ágúst síðast­liðnum sagði Hring­braut til dæmis frá aug­lýsingu frá konu sem aug­lýsti eftir vinnu.

„Konugrey á síðustu metrunum óskar eftir því tíma­bundið að verða mat­vinnungur í sveit. Er frekar löt en gæti soðið grjóna­graut og sett í þvotta­­vél. Ef gífur­­legur á­hugi er fyrir hendi má senda mér skila­­boð á audvita­dja­ja­dingdong@gma­il.com.“

Í aug­lýsingu sem birtist í nýjasta tölu­blaði Bænda­blaðsins, sem kom út í gær, segir Norð­lendingurinn að hann óski eftir að kynnast konu á aldrinum 22 til 38 ára með vin­áttu til að byrja með í huga. Hann endar aug­lýsinguna á þessum orðum: „Ein­göngu fal­legar konur hafi sam­band - bestur12345@hot­ma­il.com.“