Næstu leikir íslenska landsliðsins í knattspyrnu í Þjóðadeildinni gætu verið í hættu eftir að Bretar lögðu fram bann við ferðalögum frá Danmörku.
Íslendingar koma þar inn í myndina þar sem landsliðið á leik við Danmörku þann 15. nóvember og síðan við Englendinga þann 18. nóvember.
Samkvæmt frétt breska ríkisútvarpsins var bannið sett á vegna uppgangs hinnar svokölluðu „minkaveiru“ í Danmörku en sú tegund veirunnar berst frá minkum til manna.
BBC vísar til reglugerðarinnar þar sem að stendur að engar undantekningar verði gerðar á þessari reglu en áður höfðu undanþágur verið veittar vegna íþróttastarfs.
Evrópska knattspyrnusambandið, UEFA, er nú með málið til skoðunar en BBC Sport fékk þau svör að ekki væri hægt að fresta leiknum.