Leikskólar verða opnir allt sumarið: „fyrra fyrirkomulag hefur sett foreldra og börn í ákveðin vanda yfir sumartímann“

Fræðsluráð Hafnarfjarðar samþykkti á fundi sínum  í dag, 12. febrúar  að afnema sumarlokanir í leikskólum Hafnarfjarðar.  Frá og með sumrinu 2021 verða  leikskólar Hafnarfjarðar starfræktir allt sumarið. Þetta kemur fram á síðunni Hafnfirðingur.is.

Þar segir enn fremur að foreldrar muni geta valið um frí í júní, júlí eða ágúst, allt eftir þörfum hvers og eins.  Taka þarf frí samfleytt í 4 vikur í senn eins og verið hefur. 

Unnið verður að þessum breytingum í góðu samstarfi og samtali við stjórnendur og starfsfólk leikskólanna og  foreldrum leikskólabarna.  

Þá segir enn fremur í tilkynningu frá bænum:

„Fyrra  fyrirkomulag hefur sett foreldra og börn í ákveðin vanda yfir sumartímann og foreldrar þurft að leita annara leiða til að tryggja vistun fyrir börn sín þegar leikskólinn lokar og foreldrar ekki í sumarfríi á sama tíma.

„Rannsóknir [benda] til þess að tengslamyndun barna við foreldra sína á fyrstu æviárum þeirra  skiptir miklu máli í uppvexti þeirra og þroska og teljum við því að með þessari ákvörðun séum við að taka stórt skref í barnvænu samfélagi sem við búum við hér  í Hafnarfirði.“