Lára: Þetta skaltu sniðganga ef þú vilt forðast alvarleg veikindi af völdum COVID-19

Lára G. Sigurðardóttir, læknir og bakþankahöfundur Fréttablaðsins, hvetur fólk sem vill forðast það að veikjast illa af kórónuveirunni að sniðganga viðbættan sykur.

Þetta kemur fram í pistli Láru í Fréttablaðinu í dag.

„Sykur er stundum sagður hinar nýju reykingar. Hann eykur líkur á háum blóðþrýstingi, þyngdar­aukningu, fitulifur, bólgu og sykursýki. Allt þetta eykur hættu á alvarlegum veikindum ef einstaklingur smitast af Covid. Samt þykir mörgum eðlilegt að dæla í sig sykri á sjúkrabeðinu. Þá teljum við okkur umhyggjusöm með því að senda sælgæti til þeirra sem urðu veirunni að bráð. Gott ef ég hef ekki gerst sek um það,“ segir hún.

Lára bendir á að augljóslega hafi enginn gott af viðbættum sykri. Vísar hún í grein sem birtist í tímaritinu Frontiers þar sem allar rannsóknir á tengslum sykurs og kórónuveirunnar teknar saman.

„Þar kemur fram að sykur eykur líkur á alvarlegum veikindum með því að ýta undir hvert einasta skref sem veiran tekur til að fjölga sér og breiða úr sér innan kroppsins. ­ Þegar blóðsykur hækkar mælist einnig meira af sykri í öndunarfærum. Sykur gefur veirum skjótfengna orku, sem keyra upp starfsemi sína og framleiðslu á mjólkursýru, sem gerir yfirborð lungna súrara, en það dregur úr áhrifum sýkladrepandi efna sem lungun nota til að verja sig gegn veirum. Lungnafrumurnar byrja þá að senda frá sér efni til að ná sýrustiginu í jafnvægi, en það gerir vökvann sem þekur lungun seigari og lélegri í að losa sig við veiruna. Sykur brýtur þannig niður náttúrulegar varnir lungnanna. Sykur hjálpar auk þess veirunni að gera mikilvæg ensím óvirk, sem eykur líkur á líffærabilun og blóðtöppum. Síðan eykur sykur líkur á ofur-ofnæmisviðbrögðum og öndunarbilun, sem dregur flesta til dauða.“

Lára segir deginum ljósara að með því að gefa sætindi séum við að hjálpa öðrum að veikjast. „Kannski líkt og maður myndi grunlaus bjóða gestum sínum að leggja hinn japanska fisk Fugu sér til munns.“