Köttur fer ránshendi um Vesturbæinn: „Ég sver að við ölum þetta ekki upp í köttunum okkar“

Þjófóttur köttur gengur laus í Vesturbænum. Sá heitir Emma en hún hefur farið ránshendi um allt hverfi sitt og stolið þar bæði leikföngum og skrautlegum skóm.

Eigendur Emmu eru hjónin Arna Björk H. Gunnarsdóttir og Christopher Hickey. Anna segir í samtali við Fréttablaðið að hún þurfi síðar í dag að fara í skilaferð með leikföng sem Emme hefur stolið.

„Allt dótið sem er á myndinni er það sem hún hefur komið með heim, ég held að okkur þyki fyndnast þessi skópör sem hún hefur komið með. Skondið að fara aftur og sækja hinn skóinn,“ sagðiArna Björk í samtali við Fréttablaðið.

„„Ég þarf að fara í skilaferð með leikföngin seinna í dag og skila böngsum og skóm til nágranna okkar,“ segir hún og tekur fram að hún þurfi oft að gera það.

Hjónin hafa átt Emmu í tæp ár en hún er fædd í apríl 2019. Þar áður áttu þau kött að nafni Óskar sem hafi einnig farið í ránsferðir um hverfið. Hann hafi stolið húfum, vettlingum og alls konar loðnu dóti og fært eigendum sínum.

„Ég sver að við ölum þetta ekki upp í köttunum okkar. Það er þó skárra að hún ræni dóti heldur en drepi fugla,“ segir Arna. „Virðist sem hún hafi sama veiðieðli og Óskar því hún kemur líka heim með loðin leikföng og alls konar dótir. Skemmtilegar kisur.“

„Í gær fékk ég sko skilaboð frá fjölskyldu í sama húsi að Emma hafi stolið hvolpasveitarböngsum frá þeim!“ segir hún og hlær.