Kona lést í slysinu í morgun

Kona lést í umferðarslysi á gatnamótum Gnoðarvogs og Skeiðarvogs í Reykjavík á níunda tímanum í morgun, en tilkynning um slysið barst kl. 8.32.

Ekki er hægt að veita frekari upplýsingar að svo stöddu, en Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og rannsóknarnefnd samgönguslysa rannsaka tildrög slyssins. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglu.