„Við eigum að hætta að greina vímuefni í áfengi og eiturlyf, í góð vímuefni eða slæm,“ segir Kolbeinn Marteinsson pistlahöfundur í bakþönkum sínum í Fréttablaðinu í dag. Þar skrifar Kolbeinn um mál nr. 714 sem liggur fyrir á Alþingi í dag. Í samantekt á vef Alþingis segir „Lagt er til að varsla ávana- og fíkniefna sem teljast til eigin nota verði heimiluð. Þá er lagt til að ráðherra skuli í reglugerð kveða á um hvaða magn ávana- og fíkniefna getur talist til eigin nota.“
Kolbeinn hefur áður fjallað um mikilvægi þess að samfélagið nálgist vímuefnavandann sem heilbrigðisvandamál en ekki sem glæp. Hann bendir á að fjölmargar rannsóknir sýni að börn sem verði fyrir alvarlegum áföllum í æsku séu miklu líklegri til að ánetjast vímuefnum. „Fangelsi landsins eru full af fólki með vímuefnavanda sem samfélagið brást í barnæsku með afskiptaleysi eða vanrækslu og fordæmir síðan,“ segir Kolbeinn.
Þá segir Kolbeinn ákveðinn tvískinnungur einkenni umræðuna um vímuefni hér á landi og að við eigum að hætta að tala um fyrirlitningu um eiturlyfjasjúklinga en á sama tíma hampa drykkjurútum og áfengisneyslu. „Það var framfaraskref þegar alkóhólismi var fyrir ekki svo löngu viðurkenndur sem sjúkdómur og hætt var að líta á alkóhólista sem veikgeðja aumingja sem þyrftu að gyrða sig í brók og hætta að drekka,“ segir Kolbeinn. „Við eigum að gera það sama við einstaklinga sem haldnir eru fíkn í ólögleg vímuefni. Þess vegna á Alþingi að samþykkja mál nr. 714.“