„Mér finnst þetta hreinlega vera spurning um jafnrétti,“ segir Katrín Björgvinsdóttir í býsnaáhugaverðum pistli sem hún skrifaði fyrir vefinn Lifðu núna og birtist í gær. Lifðu núna er vefur sem hefur það markmið að gera líf og störf landsmanna sem komnir eru yfir miðjan aldur sýnilegri.
Í pistlinum veltir Katrín fyrir sér hvers vegna nær aldrei er boðið upp á tilboð fyrir einn. Hún tekur fram að það sé mjög ánægjulegt að sjá tilboð sem streyma inn frá hótelum og gistihúsum um allt land þar sem slegist er um viðskiptavininn. En öll tilboðin miðist við tvo, pör eða fjölskyldur.
„Það er fullt af fólki sem er eitt á báti og gæti hugsað sér að brjóta upp tilveruna og gera sér glaðan dag með því að stökkva á eitt slíkt – vinir, vinkonur gætu slegið til án þess að vilja deila herbergi, eða bara fara einn/ein með sjálfum sér,“ segir Katrín í pistlinum og bætir við að ferðaskrifstofur hafi lengi boðið tilboð þar sem verð miðast við að fleiri en einn ferðist saman.
„Sama á við um flest það sem er í boði fyrir jól og páska, en þar gætu hótel og gistihús komið sterk inn því margir eru einir heima á þeim tíma en vildu gjarnan breyta til.“
Katrín bendir réttilega á að sumum finnist erfitt að fara einir, til dæmis í leikhús eða út að borða en hún trúir því að ef höfðað yrði betur til þeirra með þjónustu gæti það orðið til þess að fólk drifi sig af stað. „Það yrði jafn “eðlilegt” og að 2 eða fleiri færu saman út,“ segir hún í pistlinum. Hún skorar að lokum á hótel- og gistihúsaeigendur að setja saman pakka fyrir alla, hvort sem fólk er eitt eða með öðrum. „Ég spái því að þeim verði tekið fagnandi,“ segir Katrín.
Hér má lesa pistil Katrínar í heild sinni.