Karl Hrannar ósáttur: Setið fyrir ökumönnum í leyni og brot þeirra mynduð

Karl Hrannar Sigurðsson, íbúi á Akranesi og ráðgjafi á sviði persónuverndar, segist þekkja þó nokkra einstaklinga sem lent hafa í klóm hvítrar bifreiðar af gerðinni Volkswagen Caddy á Akranesi. Í bifreiðinni er myndavél sem myndar hraðakstursbrot ökumanna í bænum.

Karl Hrannar segir að eftirlit með hraðakstri ökumanna sé gott og blessað enda mikilvægt að ökumenn keyri innan hraðamarka til að tryggja öryggis sitt og annarra vegfarenda.

„Eftirlitið á Akranesi fer þó fram með fremur athyglisverðum hætti. Hvítri bifreið af gerðinni Volkswagen Caddy er lagt hér og þar um bæinn, oftast ólöglega. Í bifreiðinni er myndavél sem tekur myndir af þeim sem aka of hratt. Hún ber ekki með sér að vera lögreglubifreið, enda ekki merkt sem slík. Ég gef mér þó að þarna sé lögregla á ferð, eða a.m.k. aðili sem þjónustar lögregluna á einhvern hátt,“ segir Karl í grein um málið á vef Vísis.

Karl Hrannar, sem er sem fyrr segir ráðgjafi á sviði persónuverndar, segir að lögum samkvæmt eigi vinnsla á persónuupplýsingum, það er myndataka í þessu tilfelli, að fara fram með sanngjörnum hætti. „Í því felst að gagnsæi verður að vera til staðar gagnvart einstaklingum, þ.e. að þeir séu meðvitaðir um eftirlitið.“

Hann bendir á að á kröfunni um gagnsæi séu ákveðnar undantekningar, en í einföldu máli megi segja að vöktun með leynd sé heimil í ákveðnum tilvikum þar sem vægari úrræði duga ekki til. Þetta eigi til dæmis við þegar einstaklingar, grunaðir um stórfelldan fíkniefnainnflutning, eru hleraðir af lögreglu. Í slíkum tilfellum megi segja að vöktun með leynd sé nauðsynleg til að koma í veg fyrir refsivert brot og þess vegna þurfi ekki að upplýsa um hana.

„Hið sama verður ekki sagt um eftirlit með hraðakstri ökumanna. Ólíkt hinum meintu fíkniefnasölum, þá er yfirleitt ekki um einbeittan brotavilja að ræða hjá ökumönnum og ólíklegt að þeir grípi til ráðstafana til að komast upp með þá háttsemi að keyra of hratt, svo sem fari aðra leið til að svala þörf sinni fyrir hraðakstur. Með vitneskju um staðsetningu lögreglunnar grípa flestir ökumenn á það sjálfsagða ráð að virða hraðamörk. Eftirlit með leynd er því á engan hátt nauðsynlegt til að koma í veg fyrir brot þeirra.“

Karl Hrannar tekur að lokum fram að hann er á engan hátt talsmaður hraðaksturs enda allir sammála um að hann sé hættulegur. En með sýnileika lögreglu sé komið í veg fyrir hraðakstur og hættunni sem af honum hlýst afstýrt.

„Þegar lögregla liggur í leyni er hinu hættulega ástandi aftur á móti viðhaldið og aðferðin því ekki til þess fallin að tryggja öryggi ökumanna og annarra vegfarenda.“