Líklegt er að sóttkví og einangrun heyri sögunni til, ef tilfellum fer fækkandi að sögn Kára Stefánssonar, forstjóra Íslenskrar erfðagreiningar. Þetta sagði Kári í þættinum Vikulokin á Rás 1 í morgun. Þetta kemur fram á vef RÚV.
Hann sagði gögn sýni að full ástæða sé að endurskipuleggja sóttvarnaraðgerðir, en tók það fram að við værum þó ekki á villugötum hvað varðar sóttvarnaraðgerðir því að enn væru margir að greinast með Delta afbrigðið, eða um fimmtíu manns daglega og það sé talvert erfiðara viðureignar en Omíkron. Omíkron afbrigðið er samt sem áður búið að breyta faraldrinum og valdi ekki COVID-19 heldur alt öðrum sjúkdómi, sagði Kári.
„Ég held að við höfum verið mjög heppin með hvernig við höfum höndlað þetta fram til dagsins í dag, en þetta er að breytast og gögnin sýna okkur að við höfum fulla ástæðu til þess að endurskipuleggja þetta og ég yrði ekkert hissa á því að innan skamms tíma þá yrði hætt að nota sóttkví og einangrun, eða að minnsta kosti að nota það mjög lítið,“ sagði Kári Stefánsson á Rás 1 í morgun.