Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, verður gestur fréttaskýringaþáttarins Kveiks í kvöld. Búið er að birta stuttan útdrátt úr þættinum á vef RÚV þar sem Kári segir meðal annars að við þurfum vanda mjög til verka næstu vikurnar.
Daglegum tillfelum COVID-19 hefur farið heldur fækkandi að undanförnu, en undanfarinn sólarhring greindust 33 innanlandssmit. Fjórtán daga nýgengi innanlandssmita á hverja 100 þúsund íbúa er nú 248,7 en var þegar mest var 290,7 þann sextánda þessa mánaðar. Kúrfan er því á niðurleið.
Kári segir í viðtalinu að vafasamt sé að anda léttar þó daglegum tilfellum fækki eins og raunin hefur verið síðustu daga. „Við verðum að halda áfram, að minnsta kosti næstu sex vikurnar, að vanda okkur gífurlega,“ segir hann.
Kári hefur áður talað um mikilvægi tvöfaldrar skimunar á landamærunum og bendir hann á að staðan væri margfalt verri ef hún hefði ekki verið tekin upp. Kári kveðst bjartsýnn á að okkur takist að ná faraldrinum niður með samstilltum aðgerðum.
„Við erum eyland, og við eigum að geta haldið þessu í skefjum eins vel eins og nokkur önnur þjóð.“