Jón Viðar Jónsson, einn fremsti leikhúsgagnrýnandi þjóðarinnar, furðar sig á yfirlýsingu Ásgeirs Jónssonar seðlabankastjóra sem hann sendi út eftir að ásakanir um ritstuld hans komu fram í gær.
Bergsveinn Birgisson, höfundur bókarinnar Leitin að svarta víkingnum, telur það engum vafa undirorpið að Ásgeir hafi notfært sér efni bókar hans við nýja bók sína, Eyjan hans Ingólfs, án þess a geta heimilda. Vísir fjallaði um málið í gær og hafði meðal annars eftir Ásgeiri að ásakanir Bergsveins um ritstuld kæmu honum mjög á óvart. „Því er til að svara að ég nýtti ekki bók Bergsveins við skrif mín,“ sagði Ásgeir.
Ásakanir Bergsveins þykja vel rökstuddar og segir Jón Viðar á Facebook-síðu sinni að yfirlýsing Ásgeirs sé furðuleg.
„Ég hef að vísu ekki lesið hina nýju bók hans, en ég hef lesið, mér til ánægju og fróðleiks, bók Bergsveins um leitina að Svarta víkingnum, og ég hef einnig lesið vandlega grein hans sem birt er á Vísi þar sem seðlabankastjóri er sakaður um ritstuld. Í greininni eru fjölmörg efnisatriði talin fram þeirri ásökun til stuðnings, en Ásgeir kýs ekki að svara einu einasta þeirra, heldur segist einfaldlega ekki hafa nýtt sér bók Bergsveins,“ segir Jón Viðar og bætir svo við innan sviga:
„Hann segir ekki berum orðum að hann hafi látið bókina ólesna sem eitt sér gæti bent til að hér sé óhreint mjöl í pokahorni.“
Jón Viðar heldur áfram:
„Nú má út af fyrir sig spyrja hvers konar fræðimennska það sé að kynna sér ekki og bregðast með jákvæðum eða neikvæðum hætti við framlagi annars höfundar á sama fræðasviði, en skrif Bergsveins eru augljóslega byggð á margra ára rannsóknum, heimildakönnun og hugmyndavinnnu. Ég er hræddur um að fræðimaður fengi ekki marga doktorstitla fyrir slík vinnubrögð hjá viðurkenndum akademískum stofnunum,“ segir Jón Viðar og bætir við að þetta sé ekki endilega aðalatriðið.
„Það versta er að Ásgeir skuli leyfa sér að bregðast við ítarlegri grein Bergsveins með þeim hætti sem hann gerir. Hið eina sem hann segir þarna er sem sé þetta: "Annars er bók mín hagsöguleg greining á landnáminu með áherslu á tengslin við Suðureyjar og stofnanauppbyggingu landsins fram að stofnun Alþingis. Áherslan er á verslun og viðskipti og síðan stofnanabyggingu landsins í breiðu samhengi."
Jón Viðar segir síðan:
„Klausan gæti verið auglýsingatexti á bókarkápu, en sem "svar" við beinskeyttri og nákvæmri Bergsveins er hún svo óboðleg að engu tali tekur, ég tala nú ekki um þegar einn af æðstu embættismönnum þjóðarinnar, maður sem sjálfur skartar doktorsnafnbót og fer ekki leynt með, á í hlut.“
Jón Viðar bendir á að Bergsveinn hafi kært málið til Siðanefndar HÍ og nefndar um vandaða starfshætti í vísindum og ætti málið þar með að vera komið í réttan farveg.
„Þessar nefndir hljóta að fara vandlega yfir það, því hér er um grafalvarlegan hlut að ræða, hlut sem varðar ekki aðeins HÍ heldur allar stofnanir og einstaklinga sem að íslenskum fræðum starfa.“