Jón Steinar Gunnlaugsson, lögmaður og fyrrverandi hæstaréttardómari, setur stór spurningamerki við sóttvarnaraðgerðirnar í grein í Morgunblaðinu í dag. Er ekki hægt að skilja hann öðruvísi en hann telji Ómíkro-afbrigði Covid-19 sem gengur nú yfir samfélagið ekki réttlæta sóttvarnaraðgerðirnar.
„Hafa menn áttað sig á hvers konar ástandi hefur verið komið á hér á landi um þessar mundir?,“ spyr hann.
„Stjórnvöld í landinu reyna að hefta útbreiðslu veiru með því að fyrirskipa mönnum að fara í svokallaða sóttkví eða einangrun og er þá ekki skilyrði að viðkomandi maður beri í sér veiruna; nóg er að hann hafi hitt einhvern sem gerir það.“
Jón Steinar segir að það liggi fyrir að Ómíkron afbrigði Covid-19 valdi ekki veikindum, eða svo litlum og hjá svo fáum að engu máli skiptir.
„En sóttvarnalæknir tekur ákvarðanir um þetta og stjórnmálamennirnir sem við höfum kosið yfir okkur þora ekki annað en að hlýða,“ segir hann.
„Engu máli skiptir við þessar tilgangslausu ákvarðanir að fjöldi manna verður fyrir alvarlegu tjóni vegna þeirra. Þar eru drykkjuskapur, heimilisofbeldi, sjálfsvíg og gjaldþrot ofarlega á blaði. Og ef þú hlýðir ekki þessum fyrirmælum stjórnvaldanna verður þú sektaður.“