Jón Óðinn: Ótrúlegt klúður lögreglunnar – „Við hlunkarnir sprettum af stað“

Jón Óðinn Waage þykir með skemmtilegri pistlahöfundum en þessi fyrrverandi júdóþjálfari og leiðbeinandi barna með hegðunarvandamál hefur komið víða við á starfsferli sínum.

Í pistli á vefnum Akureyri.net rifjar Jón Óðinn upp þegar hann starfaði í lögreglunni á Akureyri. Óhætt er að segja að um sprenghlægilega sögu sé að ræða, en Jón Óðinn tekur fram að hann sé að sjálfsögðu bundinn trúnaði um flest það sem á daga hans dreif í lögreglunni. Sumt sé bara of gott til að þegja yfir og er eftirfarandi saga þess eðlis.

„Ég var svo lánsamur að í þau fimm ár sem ég var í lögreglunni var lítið um fíkniefnamál. Í þau örfáu skipti sem að það gerðist þá rann blóðið í okkur dálítið hraðar. Einu sinni voru piltar gripnir með fíkniefni á sér. Þeir reyndust vera að koma heiman frá ungum manni sem að nýfluttur var í bæinn. Sá hafði það orðspor á sér að hafa verið býsna innviklaður í undirheimana í Reykjavík, hugsanlega væri hann jafnvel vopnaður.“

Jón Óðinn segir að örlítil geðshræring hafi gert vart við sig meðal lögreglumannanna, en heimili unga mannsins var gamalt iðnaðarhúsnæði. Ákveðið var að ráðast til inngöngu þar og segir Jón Óðinn að þrír mestu þungavigtarmennirnir (í kílóafjölda) sem voru á vakt hafi verið kallaðir til.

„Síðan var skipulagt. Ákveðið var að fulltrúi sýslumanns myndi fara fyrstur klæddur í borgaraleg klæði og að hann myndi banka upp á. Þegar komið væri til dyra myndum við þrír hlunkarnir ryðjast til inngöngu. Yfirmaður rannsóknardeildar myndi síðan vera í talstöðvarsambandi og stýra aðgerðum.“

Aðgerðir hófust skömmu síðar og knúði fulltrúi sýslumanns dyra. Enginn svaraði og segir Jón að „hlunkarnir“ þrír hafi beðið yfirspenntir við húshornið.

„Í nokkur andartök var eins og tíminn stæði kyrr, síðan öskraði yfirmaður rannsóknardeildar í talstöðina: Ráðist til inngöngu. Við hlunkarnir sprettum af stað, hentum fulltrúa sýslumanns til hliðar og svo lögðumst við allir þrír, hátt í hálft tonn, á hurðina. Þetta var lítil hurð á mjög stórri bílskúrshurð, hvoru tveggja úr gömlu timbri sem ætlað var að þola talsvert. Og hurðin bifaðist ekki.“

Jón Óðinn segir að spennustig hlunkanna þriggja hafi verið komið að suðumarki og gott betur hjá einum í hópnum. „Hann greip nú upp gamla hásingu af bíl sem að lá þarna við hliðina og lét hana vaða í hurðina. Það dugði, inn fór hurðin og í gegnum þetta hurðargat reyndum við nú þrír að troða okkur. Gatið rétt rúmaði einn okkar í einu hvað þá þrjá. Að endingu spýttumst við allir þrír inn í einu. Innan við hafði verið tjaldað miklum og þykkum gluggatjöldum. Við festumst þeim þannig að þau rifnuðu niður og við kútveltumst um gólfið hver um annan þveran vafðir inn í gluggatjöld.“

Jón Óðinn segir að ungi maðurinn hafi ekki verið heima, kannski sem betur fer miðað við aðfarirnar, en engin eiturlyf fundust í húsleitinni. Jón Óðinn endar pistilinn svo á þessum orðum:

„Við skoðun á hurðinni kom í ljós að hún hafði verið ólæst, hún opnaðist bara út.“