Jón Ingi sorgmæddur: „Við féllum fyrir brellunni, enn og aftur“

Jón Ingi Hákonarson, oddviti Viðreisnar í bæjarstjórn Hafnarfjarðar, segir að íslenskir kjósendur hafi fallið fyrir brellunni, enn eina ferðina.

„Það er auðvelt að fela óstöðugleikann með verðtryggingunni. Við féllum fyrir brellunni, enn og aftur. Stöðugleiki í boði gamla fjórflokksins var mantran sem við kusum. En hér hefur aldrei ríkt stöðugleiki, eina sem er stöðugt er óstöðugleiki sem samanstendur af verðbólgu, vöxtum og gjaldmiðli í höftum,“ segir Jón Ingi í aðsendri grein sem birtist á vef Vísis í dag.

Jón Ingi er harður talsmaður þess að taka upp stóra alþjóðlega mynt og hefur hann reglulega viðrað þá skoðun sína í pistlum á vef Vísis. Hann hefur áður sagt að ríkasti hluti þjóðarinnar rói að því öllum árum að viðhalda því kerfi sem er við lýði á Íslandi.

„Verðtryggingin gleypir kostnaðinn af óstöðugleikanum og skilar honum til okkar áratugum seinna. Stöðugleikinn er einungis á yfirborðinu, rétt undir því eru sterkir straumar sem soga til sín verðmæti almennings og flytur þau til útvaldra.“

Jón Ingi segir að í vikunni hafi rússíbani stöðugleikans farið í enn eina dýfuna. Vísar hann í stýrivaxtahækkun Seðlabankans á dögunum, en stýrivextir hafa hækkað umtalsvert undanfarna mánuði með tilheyrandi áhrifum á óverðtryggð lán á breytilegum vöxtum.

„Líklegt er að við sem höfum fært okkur úr verðtryggingunni yfir í óverðtryggð lán munum ekki ráða við mánaðarlega hækkun afborgana og neyðast til að flýja í skúmaskot verðtryggingarinnar. Þetta er þyngra en tárum taki,“ segir Jón Ingi að lokum í pistli sínum.