Jón Ármann: Sjómennirnir fengu lík í trollið – Engin tilraun var gerð til að bera kennsl á manninn

„Þá er eflaust einhversstaðar fjölskylda sem veltir því fyrir sér hvað varð um þennan horfna ættingja sinn. Kannski er það fólk í útlöndum, eða fólk hér heima á Íslandi? Hver veit?“

Þetta segir Jón Ármann Steinsson í mjög svo áhugaverðri grein sem birtist á vef Vísis nú í hádeginu. Þar greinir hann frá því að á vormánuðum 1980 hafi skipverjar um borð í Hásteini ÁR-8 verið á humarveiðum suðaustur af Vestmannaeyjum þegar óhugnanleg sjón blasti við.

„Það var rjómalogn og sléttur sjór þegar skipverjar drógu inn trollið og tæmdu pokann á dekkið. Innan um humarinn sást glitta í tvö vaðstígvél, og þegar betur var að gáð neðri helming af mannslíkama klæddan í gallabuxur með leðurbelti um mittið. Nálykt fyllti lognið og skipverjar brugðu á það ráð að setja líkið í tunnu með loki. Þá var haldið til hafnar í Eyjum þar sem lögreglan beið á kæjanum.“

Jón Ármann segir í grein sinni að hér gæti frásögnin endað ef ekki væri fyrir það að einskiss manns var saknað og engin tilraun gerð, hvorki fyrr né síðar, til að finna út hver þessi óþekkti sjómaður væri.

„Af því beltið var með silfursylgju gat lögreglan sér til að hér væri um útlending að ræða. Þá var ómögulegt að segja til um hversu lengi útlendingurinn hafði hvílt í sjó. Þar með endaði lögreglurannsóknin.“

Jón Ármann rifjar upp að í nóvember 1974 hafi þrír menn komið til Vestmannaeyja en aðeins tveir snúið til baka. „Eftir það spurðist ekkert til hins þriðja. Já, þetta hljómar eins og saga um ekki neitt, en engu að síður varð þessi heimsókn til þess að endurupptaka Geirfinnsmálsins tók vinkilbeygju árið 2016. Lögreglan yfirheyrði mennina tvo og fyrrum lagskonu annars þeirra en ekkert kom út úr því. Svo var pælt í hvort og hvernig Geirfinnur gæti hafa komið til Eyja daginn eftir að hann hvarf í Keflavík, og ef þriðji maðurinn var ekki sjálfur Geirfinnur, hver var hann þá, og hvað varð svo um þriðja manninn?“

Hann bendir á að gróusögurnar hafi lognast út af en í millitíðinni hafi líkið fundist árið 1980.

„Var líkið Geirfinnur? Var þarna fram kominn þriðji maðurinn? Eða bara einhver óþekktur útlendur sjómaður?“

Jón Ármann rifjar svo upp að í upplýsingatómi um hinn meinta óþekkta sjómann hafi stýrimaður Hásteins tekið sig til og hafið fjársöfnun. „Sá var frá Stokkseyri og bar sterkar taugar til kirkjunnar á staðnum. Taldi hann plássinu til bóta ef líkið yrði jarðað þar og reistur minnisvarði helgaður „Óþekkta sjómanninum“. Fjársöfnunin gekk vonum framar og minnisvarðinn er Stokkseyringum og kirkjugarðinum til sóma.“

Jón Ármann segir að eftir jarðsetninguna virðist allir hafa sætt sig við að um væri að ræða varanlega óþekktan sjómann og óþarfi væri að reyna að finna út hver hann væri.

„Skítt með tilkomu DNA sem gæti sýnt ættartré í báða ættliði um aldir og jafnvel birt nafn hans í leitarniðurstöðum á netinu. Þá er eflaust einhversstaðar fjölskylda sem veltir því fyrir sér hvað varð um þennan horfna ættingja sinn. Kannski er það fólk í útlöndum, eða fólk hér heima á Íslandi? Hver veit?“

Jón Ármann segir að vel sé hægt að leysa gátuna, eða að minnsta kosti gera tilraun til þess. Það eina sem þarf er að formaður Kennslanefndar svari kallinu.

Grein Jóns Ármanns, sem hann byggir meðal annars á frásögn skipstjóra Hásteins ÁR-8, má lesa í heild hér.