Jóhanna Guðrún ætlaði að bíða með að segja dóttur sinni frá nýju systkini: „Þetta fannst mér innrás inn í mitt einkalíf“

Söngkonan Jóhanna Guðrún Jónsdóttir segir í viðtali við Vísi að henni hafi brugðið að sjá frétt um að hún væri ólétt, hún hafi ekki einu sinni verið búin að segja dóttur sinni að hún væri að fara að eignast systkini.

Jóhanna Guðrún skildi við barnsföður sinn fyrr á árinu og nýverið var greint frá því að hún væri komin í samband með Ólafi Friðriki Ólafssyni sem var áður kærasti hennar.

Jóhanna Guðrún segir að það hafi verið mjög erfitt að sjá frétt um að hún ætti von á barni.

„Ef það er eitthvað sem ég hef lært, því miður, að í þessum geira sem ég er í þá verður maður svolítið bara að kyngja því að maður á sér ekkert „privacy“. Þetta var samt alveg pínu áfall fyrir mig, að þetta skyldi vera tilkynnt án þess að einhver reyndi einu sinni að hafa samband við mig. Ég var ekki einu sinni búin að segja dóttur minni þetta,“ sagði hún. Jóhanna Guðrún ætlaði að bíða eftir að 20 vikna sónar til að segja börnunum sínum frá þessu.

„Ég þurfti að hringja í frístundaheimilið hjá dóttur minni og segja henni þetta í símanum af því að fólk var byrjað að blaðra um þetta út um allt. Þetta finnst mér ljótt. Ég skildi fréttirnar um mig og Óla, ég vissi að það kæmi fyrr eða síðar. En ég hef aldrei séð áður fjölmiðil gera þetta.“

Hún segir að það hafi átt að bíða eftir að vitað væri að allt væri í lagi með barnið. Henni fannst þetta innrás:

„Ég varð leið. Ég er ekki mjög hörundsár en þetta fannst mér innrás inn í mitt einkalíf. Meira heldur en það sem maður á að þurfa að þola.“