„Félagsmálaráðherra og fjármálaráðherra verða að upplýsa Alþingi og almenning um alla þætti þessa máls og, það sem mestu skiptir, leiðrétta þetta, bæta fólkinu upp tjónið. Íslenska ríkið á að skila þessum peningum strax.“
Þetta sagði Jóhann Páll Jóhannsson, þingmaður Samfylkingarinnar, í umræðum um störf þingsins í gær. Jóhann Páll gerði þá nýlega umfjöllun Fréttablaðsins að umtalsefni. Í ítarlegri fréttaskýringu var fjallað um lífeyrisþega sem tóku út lífeyrissparnað sem hluta af sérstöku úrræði stjórnvalda í heimsfaraldri Covid. Margir þeirra búa enn við skerðingar og skuld við Tryggingastofnun nærri tveimur árum eftir úttekt, þrátt fyrir að skýrt væri tekið fram í lögum að úttektin ætti ekki að leiða til skerðinga.
Jóhann Páll rifjaði upp að hann hefði þann 9. mars síðastliðinn gert nákvæmlega þetta að umtalsefni á Alþingi.
„Sama dag lagði ég fram fyrirspurnir til félagsmálaráðherra og fjármálaráðherra, krafði þá skýringa á þessu og óskaði eftir svörum um það hvort, hvernig og hvenær komið yrði til móts við allt þetta fólk. Síðan eru liðnir rúmlega tveir mánuðir og ekkert bólar á svörum.“
Jóhann Páll vísaði svo í umfjöllun Fréttablaðsins þar sem tekin voru viðtöl við fólk sem líður fyrir þessa óvönduðu lagasetningu og lagaframkvæmd, fólk sem leysti út séreignarsparnaðinn í góðri trú að hvatningu stjórnvalda en hefur svo bara lent í örgustu vandræðum.
„Einn viðmælandinn, Júlíus Birgir Jóhannsson, er daufblindur og heyrnarlaus. Hann tók út séreignarsparnað til að greiða fyrir búnað sem hann þurfti á að halda vegna fötlunar sinnar og í kjölfarið skertust húsnæðisbæturnar hans og greiðslur frá Tryggingastofnun, þvert á ákvæði laganna,“ sagði Jóhann Páll sem endaði ræðu sína á þessum orðum:
„Virðulegi forseti. Félagsmálaráðherra og fjármálaráðherra verða að upplýsa Alþingi og almenning um alla þætti þessa máls og, það sem mestu skiptir, leiðrétta þetta, bæta fólkinu upp tjónið. Íslenska ríkið á að skila þessum peningum strax.“
Hér má lesa ítarlega umfjöllun Fréttablaðsins á dögunum.