Blaðamaðurinn geðþekki Jakob Bjarnar Grétarsson velti upp stórri spurningu á Facebook-síðu sinni í gærkvöldi um eina þekktustu hljómsveit í sögu Íslands.
„Ein af ráðgátum þessa heims er hvernig á því stendur að Hljómar urðu ekki heimsfrægir? Gunnar Þórðarson er auðvitað snillingur og engar fréttir en leitt að vér Íslendingar sitjum einir að þeirri vitneskju,“ sagði Jakob Bjarnar og tóku ýmsir undir með honum.
Hljómsveitin var stofnuð árið 1963 og varð hún fljótt ein sú vinsælasta hér á landi. Ásgerður Eyþórsdóttir bendir á að ef Hljómar hefðu verið bandarísk hljómsveit hefði hún sannarlega orðið heimsfræg. Það sama megi sennilega segja um Magnús Þór Sigmundsson og Jóhann Helgason.
Sjónvarpsmaðurinn Egill Helgason bendir á að það hafi ekki verið nokkur leið fyrir tónlistarmenn frá landi eins og Íslandi að brjótast inn á alþjóðamarkað á þessum árum – sama hversu góð tónlistin var. „Það breyttist síðar og nú er slatti af íslenskum músíköntum stöðugt að túra erlendis.“