Svo virðist sem einhverjir Íslendingar hafi tekið upp á því að henda Soda Stream-tækjunum sínum. Ástæðan er sú að fyrirtækið sem framleiðir umrædd tæki er ísraelskt. Eins og margir vita geisar stríðsástand á Vesturbakkanum milli Ísraels og Palestínu.
Mörgum þykir Ísraelsmenn hafa farið yfir strikið og hafa hvatt til þess að ísraelskar vörur verði sniðgengnar. Áhrifavaldurinn og Crossfit-stjarnan Edda Falak greindi til dæmis frá því á Twitter-síðu sinni í gær að hún hefði fargað sínu Soda Stream-tæki.
Tilkynningunni fylgdi skjáskot af Wikipediu þar sem greint er frá því að fyrirtækið sé ísraelskt. Sitt sýnist hverjum um þetta. Einn bendir Eddu á að það séu Palestínumenn sem vinni í verksmiðjum Soda Stream og þeir þurfi sannarlega á störfum að halda núna. Þá er henni bent á að tækni sem finna má í iPhone-snjallsímum sé frá Ísrael sem og tölvur með Intel-örgjörva.
Elín Björk Jónasdóttir, sérfræðingur á Veðurstofu Íslands, blandar sér í málið á sinni Twitter-síðu og hvetur fólk til að henda ekki tækjunum.
„Kæra fólk. Að henda Sodastream tækjunum hjálpar engum í Palestínu. Það er vont fyrir loftslagið að nýta ekki það sem er til og loftslagsáhrif hafa meiri áhrif á það fólk sem þegar er varnarlaust en okkur hin. Leggið frekar jafnvirði Sodastream tækisins inn á t.d. Rauða Krossinn,“ segir Elín BJörk og bætir við að einnig megi leggja inn á félagið Ísland-Palestína.
Þá virðast margir hafa áhuga á að kaupa kolsýruhylki sem passa í Soda Stream-tækin en eru ekki frá fyrirtækinu sjálfu. Hér að neðan má sjá umræðuþræði á Twitter um málið.
Fargaði Sodastream tækinu mínu í gær. pic.twitter.com/veJ7zUXLxt
— edda falak (@eddafalak) May 16, 2021
Kæra fólk. Að henda Sodastream tækjunum hjálpar engum í Palestínu. Það er vont fyrir loftslagið að nýta ekki það sem er til og loftslagsáhrif hafa meiri áhrif á það fólk sem þegar er varnarlaust en okkur hin.
— Elín Jónasdóttir (@elinbjon) May 17, 2021
Leggið frekar jafnvirði Sodastream tækisins inn á t.d. Rauða Krossinn.
Mikið talað um kolsýrutæki þessa dagana. Það er ekki hægt að kaupa gashylki í þessar græjur nema frá Sodastream, EN það er hægt að kaupa 4.5 kílóa kolsýrukút þar sem ein áfylling kostar um 3k og endist í um 400 lítra af vatni!
— Liljar Þorbjörnsson (@liljarmar) May 17, 2021
Elskaru kolsýrt vatn? Sýndu það í verki