Unnsteinn Manúel Stefánsson, söngvari og leikari, flutti á síðasta ári út til Berlínar í nám ásamt unnustu sinni Ágústu Sveinsdóttur og barnungum syni þeirra, Víkingi. Þar lærir Unnsteinn handritaskrif fyrir sjónvarpsþætti í Þýska kvikmyndaskólanum.
Vinkona parsins, Helga Laufey Ásgeirsdóttir, sem einnig er búsett ytra, deildi mynd af þeim feðgum, Unnsteini og Víkingi, á Instgram á dögunum en þar má sjá Víking, beran að ofan, á háhesti á föður sínum.
Myndin er einstaklega falleg og því kom það Helgu Laufeyju, sem starfar sem ljósmyndari, verulega á óvart þegar hún fékk tilkynningu um að Instagram hafi lokað á myndina á þeim forssndum að hún bryti í bága við samfélagsreglur miðilsins.
Sjón er sögu ríkari: