Ingólfur Þórarinsson, betur þekktur sem Ingó veðurguð, hefur ekki látið mikið fyrir sér fara undanfarna daga, eða síðan greint var frá því að hann hefði sent kröfubréf til nokkurra einstaklinga vegna ummæla þeirra á samfélagsmiðlum.
Ingó verður þó í eldlínunni annað kvöld en þá mun hann troða upp á íslenska veitingastaðnum Bambú bar & bistro á Tenerife. Halla Birgisdóttir, eigandi veitingastaðarins, greinir frá þessu í Facebook-hópnum Íslendingar á Tenerife og vísar í færslu sem birtist á Facebook-síðu Bambú.
Í færslunni kemur fram að tónleikarnir hefjist klukkan 20:30 annað kvöld og þá er tekið fram í færslunni að ekki sé um grín að ræða, eða „NO JOKE“ eins og það er orðað nákvæmlega.
Eins og kunnugt er stóð til að Ingólfur myndi stýra brekkusöngnum á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum í ár. Þjóðhátíðarnefnd ÍBV tilkynnti í byrjun júlímánaðar að ekkert yrði af því í ljósi umræðu um tónlistarmanninn á samfélagsmiðlum dagana á undan. Ingólfur staðfesti svo sjálfur í samtali við Vísi þann 12. júlí að búið væri að afbóka Ingólf af fjölda gigga.