Ingólfur Þórarinsson, betur þekktur sem Ingó Veðurguð, hefur gefið út nýtt lag. Hann hefur ekki gefið út nýtt lag í nokkurn tíma en lítið hefur farið fyrir honum undanfarið tvö ár eftir að fjöldi nafnlausra frásagna birtust þar sem Ingólfur var sakaður um kynferðisofbeldi.
Ingó er nú kominn úr pásunni og hefur gefið út lagið Gítarinn.
Í færslu á Facebook segir Ingó að hann elski fátt mátt meira en að búa til tónlist. Síðustu tvö ár hafa verið honum lærdómsrík og hafi margir haldið að hann væri hreinlega hættur í tónlist og hafi sett gítarinn upp á hillu.
„Ég hef haft tíma til að spá í tónlist og mig langaði að gefa frá mér lag sem ég er ákaflega stoltur af. Ég hef alltaf komið til dyranna eins og ég er klæddur hvað varðar texta í lögunum mínum og í þessu er engin breyting.
Þetta lag var samið áður en ég fékk bestu fréttir lífs míns að ég væri að verða faðir sem hefur einnig hvatt man til að einblína á allt það sem er jákvætt,“ skrifar Ingó.
Texti lagsins fjallar um mann sem allir hafi snúið bakinu við og hefur ekkert nema gítarinn. „Hann situr einn í dimmu húsi, enginn honum hjá. Gítarinn er það eina sem hann á.“
Endurkoma Ingó á stóra sviðið er svo væntanleg en hann stefnir á tónleika þann 10. mars undir yfirskriftinni „Loksins gigg“