Ingibjörg lætur Jón Baldvin heyra það: Rifjar upp atvik árið 2007 sem virðist lýsandi fyrir hann

„Jón Baldvin Hannibalsson ekki meir, ekki meir, hugsaði ég þegar ég frétti af þessu máli í síðustu viku og beitti mig eiginlega hörðu til að lesa þessa frásögn,“ segir Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrverandi formaður Samfylkingarinnar og fyrrverandi ráðherra, í færslu á Facebook-síðu sinni.

Þar gerir hún mál Jóns Baldvins Hannibalssonar, fyrrverandi ráðherra, að umtalsefni en kveikjan að skrifum hennar eru dagbókarfærslur Þóru Hreinsdóttur, nemanda Jóns Baldvins Hannibalssonar í Melaskóla árið 1970, sem birtust í forsíðuúttekt Stundarinnar sem kom út fyrir helgi.

Ingibjörg segir að skrif Þóru séu merkileg heimild um aðferðir hans við að ná tökum á Þóru og hvaða afleiðingar það hafði fyrir hugarástand hennar. Í umfjölluninni kom fram að Jón hefði átt í kynferðislegum samskiptum við Þóru sem á þessum tíma var fimmtán ára gömul en Jón Baldvin 31 árs, fjögurra barna faðir.

„Jón Baldvin Hannibalsson ekki meir, ekki meir, hugsaði ég þegar ég frétti af þessu máli í síðustu viku og beitti mig eiginlega hörðu til að lesa þessa frásögn,“ segir Ingibjörg sem kveðst í framhaldinu hafa lesið allar þær sögur sem safnað hefur verið saman af meintum kynferðisbrotum og áreiti Jóns. Ingibjörg segir að við lesturinn hafi komið í ljós ákveðið mynstur sem gangi eins og rauður þráður í gegnum allt hans atferli.

„JBH hagar sér eins og rándýr sem velur bráð sína af kostgæfni - oftar en ekki einstakling sem er ekki með sterkt bakland - sækir að henni með skipulögðum hætti, sýnir henni áhuga, jafnvel trúnað, vingast við hana og vinnur traust hennar. Þegar traustið er komið er eftirleikurinn auðveldur. Þetta er lýsing á ótrúlega ljótum og ójöfnum leik þar sem kennarinn, skólameistarinn, ráðherrann og sendiherrann misbeitir valdi sínu og sækir að unglingsstúlkum,“ segir Ingibjörg.

Hún segist hafa fengið vitneskju um eitt þessara mála árið 2007 þegar hún var formaður Samfylkingarinnar. Varð það til þess að hún ræddi í trúnaði við Jón Baldvin og bað hann að segja sig frá heiðurssæti á lista Samfylkingarinnar í Reykjavíkur fyrir þingkosningarnar 2007.

„Hann varð við þessari ósk minni en í stað þess að láta þar við sitja og sýna svolitla iðrun og hugarangur vegna framferðis síns fór hann rakleiðis í Silfur Egils og vældi yfir því að ég hefði hafnað honum í heiðurssætið á pólitískum forsendum. Þetta gerði hann vitandi að ég gæti aldrei sagt opinberlega hver var hin raunverulega ástæða fyrir því að ég vildi hann ekki í heiðurssætið. Það var svo ekki fyrr en 5 árum síðar, þegar Guðrún Harðardóttir steig fram, sem ástæðan varð heyrinkunn,“ segir Ingibjörg.

Hún kveðst skrifa þetta núna þar sem Jón hafi aldrei viðurkennt misgjörðir sínar. Þá láti margir sér þær í léttu rúmi liggja af því að þeim finnst Jón Baldvin hafa lagt svo margt að mörkum í íslenskri pólitík.

„Það kemur þessu máli hins vegar ekkert við og menn komast aldrei framhjá þeirri staðreynd að þann orðstír sem JBH ávann sér á hinum pólitíska vettvangi hefur hann sjálfur lítilsvirt með því að misbeita því valdi sem honum var falið gagnvart fjölmörgum unglingsstúlkum og konum. Þar er ekki öðrum um að kenna.“

Ingibjörg segist einnig skrifa færsluna vegna þess að mál Jóns Baldvins er ekki einsdæmi.

„Oft berast sögur af kynferðisáreitni og nauðung af hálfu karla sem eru vel liðnir, hæfileikaríkir, vel metnir og hátt á kvisti í verðleikasamfélaginu. Við eigum mjög erfitt með að horfast í augu við að flottir karlar misbeiti valdi sínu gagnvart ungum konum og körlum. En það gerist nú samt og ef við neitum að horfast í augu við það þá er okkur líkt farið og fólki fyrri alda sem þagði yfir eða lét kyrrt liggja að heldri menn og valdsmenn misnotuðu undirsáta sína. Takk Valgerður Þorsteinsdóttir fyrir að birta dagbókarfærslu móður þinnar og takk Bjarni Frímann Bjarnason fyrir þinn kjark. Við hin verðum að hafa kjark til að taka á þessum málum.“