Inga Sæland: Ef þið hefðuð bara hlustað hefðu 44 smit ekki greinst um helgina

Inga Sæland, þingmaður og formaður Flokks fólksins, segir að fjórða bylgja COVID-faraldursins sé handan við hornið fyrir ótrúlega handvömm og veiklyndi ríkisstjórnarinnar. Segir Inga að hún hafi hvorki getað lært af reynslunni né haft manndóm til að grípa til þeirra aðgerða sem hefði átt að gera strax í upphafi faraldursins.

„Sérhagsmunagæslan er dýru verði keypt þar sem gamblað er með líf okkar og heilsu eins og hverja aðra söluvöru. Einhvers staðar segir að „brennt barn forðist eldinn“ en þrátt fyrir fyrri reynslu og yfirstandandi hörmungar af Covid í heiminum þá hika íslensk stjórnvöld ekki við að kasta okkur ítrekað á sama bálið, hafa einungis bætt sprekum á eldinn svo það logi enn betur,“ segir Inga Sæland í aðsendri grein í Morgunblaðinu í dag.

Inga bendir á að hið svokallaða breska afbrigði veirunnar sé mun meira smitandi en það sem við áður þekkjum.

„Það er einmitt það sem við erum að glíma við í dag. Stjórnvöld áttu og eiga nú strax að loka landinu fyrir allri ónauðsynlegri umferð. Þeir sem geta sýnt fram á nauðsyn þess að fara um landamærin eiga skilyrðislaust að fara í sóttkvíarhús undir ströngu eftirliti. Ef slíkar aðgerðir hefðu verið viðhafðar þá héldum við í dag tæplega 90% hagkerfisins gangandi hér innan lands.“

Inga sér fyrir sér að Íslendingar myndu halda áfram að nýta sér íslenska þjónustu og verslun. Nefnir hún að það höfum við einmitt gert á síðasta ári í ríkari mæli en nokkur hagspá sá fyrir. Að sjálfsögðu myndum við halda þessu áfram samhliða bólusetningum; óttalaus án samkomutakmarkana og lokana.

„En nei, það verður ekki í boði þessarar ríkisstjórnar. Stöðug áföll þar sem vanhæf stjórnvöld opna og loka á víxl fyrir æðar hagkerfisins eru að valda okkur miklu meira tjóni en ábata vegna aðgerðanna. Ekki bætir úr skák að einhverjir sitjandi ráðherrar, þingmenn og þekktir flokksmenn stærsta stjórnarflokksins, Sjálfstæðisflokks, eru sífellt að grafa undan samstöðu þjóðarinnar í sóttvörnum. Þau sá fræjum efasemda og tortryggni um þær aðgerðir sem reynt er að grípa til svo stöðva megi veiruna.“

Eins og komið hefur fram má rekja holskeflu þeirra smita sem greindust um helgina til einstaklinga sem fóru ekki að reglum um sóttkví. Virðist brot annars þeirra hafa verið sérstaklega alvarlegt en sá kom til landsins um síðustu mánaðamót.

„Þríeykið segir okkur að þeir tveir einstaklingar sem nú brutu sóttkvíarreglur og dreifðu smiti hafi komið til landsins um sl. mánaðamót. Ef þessir einstaklingar hefðu verið í sóttkvíarhúsi þá er ég ekki í nokkrum vafa um að við hefðum ekki fengið 44 innanlandssmit í fangið yfir helgina.“

Grein sína endar Inga á þessum orðum:

„Flokkur fólksins fordæmir enn og aftur ríkisstjórn sem grímulaust tekur sérhagsmuni fárra fram yfir almannahag og teflir með því lífi okkar og heilsu í voða. Ríkisstjórn sem er ekki bær til að setja reglur sem halda svo sóttvarnalæknir geti unnið vinnuna sína. Ríkisstjórn sem gerir ekkert með vilja 94% þjóðarinnar sem kallar eftir lokun landamæranna fyrir ónauðsynlegri umferð. Slík ríkisstjórn er vanhæf ríkisstjórn.“