Árni Birgisson og Inga Snorradóttir eru íslensk hjón sem eru búsett í Noregi, en eru um þessar mundir stödd í Tyrklandi í utanlandsferð. Í gærkvöld urðu þau vitni að hræðulegum atburði á meðan þau voru stödd á veitingastað.
DV fjallar um málið. Umræddur atburður var morð sem átti sér stað í verslun hinum megin við götuna, en fram kemur að maðurinn hafi verið borinn út úr versluninni, með stungusár á höfði stjörf augu.
„Við vorum búin að ganga framhjá þessari verslun og ætluðum að kíkja inn síðar. En við sátum þarna og vorum að bíða eftir vinafólki okkar. Veitingastaðurinn akkúrat hinum megin við götuna. Allt í einu varð uppi fótur og fit. Fólk reif mótorhjól frá staðnum til að rýma fyrir sjúkrabíl. Sjúkraflutningafólkið hljóp inn og bar manninn út, ekki á börum, heldur í einhvers konar opnum poka,“
Þetta segir Árni sem bætir við: „Hann var borinn út fyrir allra augum, alblóðugur og með skurð á hálsinum,“
Fram kemur í frétt DV að maðurinn sem er grunaður um verknaðinn sé í haldi lögreglu, en hann hafði gert tilraun til að fjarlægja sönnunargögn, meðal annars með því að taka niður öryggismyndavélar.
„Þetta var mjög óhugnanlegt. Dóttir hins myrta, kona líklega um 25 ára, kom á vettvang og hún var öskrandi og grátandi og einhver maður tók hana í fangið. Mér leið eins og ég væri stödd í einhverri bíómynd,“ segir Inga um málið.
Hægt er að lesa nánar um málið á vef DV.